Olíusjóðurinn að kaupa verslunargötu af Bretadrottningu 27. júlí 2010 07:09
Hluti af einni þekktustu verslunargötu í miðborg London, Regent Street, er til sölu. Eigandi götunnar er Elísabet II Bretadrotting. Bresku konungsfjölskyldunni er bannað með lögum að taka lán og því þarf hún að selja eignir ef hana skortir lausafé. Samkvæmt frétt í blaðinu Telegraph á Elísabet Bretadrottning nú í samningum við norska olíusjóðinn um sölu á allt að fjórðungi af Regent Street en öll húsin við þá götu, sem og gatan sjálf eru í eigu Elísabetar. Norski olíusjóðurinn hefur fengið heimild frá norskum stjórnvöldum til þess að fjárfesta fyrir allt að 2.600 milljarða króna í erlendum fasteignum. Það er fasteignafélag drottningarinnar, The Crown Estate, sem annast söluna en verðmiðinn fyrir fjórðunginn af Regent Street er 400 milljónir punda eða um 75 milljarðar króna. Féið ætlar Elísabet að nota til nauðsynlegra endurbóta og þróunnar á eignum sínum í St. James hverfinu. Hvorki konungsfjölskyldan né olíusjóðurinn vilja staðfesta að samningar um kaupin á Regent Street standi yfir.
Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira