Stjórn Magasin du Nord vonast eftir sölu á næstunni 9. mars 2009 09:33
Stjórn Magasin du Nord vonast eftir því að stórverslunin verði seld á næstunni í framhaldi af því að Straumur fór undir stjórn Fjármálaeftirlitsins (FME) í morgun. Magasin du Nord, sem er flaggskip danska verslunargeirans, komst í hendur Straums fyrr í vetur í kjölfar þess að Baugur hrundi. Síðan Straumur tók við rekstrinum hafa margar sögur sprottið upp um að verslunin væri til sölu. CVarsten Fensholt fjármálastjóri Magasin segir í samtali við business.dk í morgun að hann telji ekki að yfirtaka FME hafi nein áhrif á hvort Magasin verði selt í framtíðinni. "Nú er það hinsvegar ekki Straumur einn sem ákveður framtíð Magasin heldur mun íslenska fjármálaeftirlitið hafa áhrif," segir Fensholt. Fensholt segir að hingað til hafi íslensk stjórnvöld ekki átt í erfiðleikum með að losa sig við eignir sem þau hafi yfirtekið. "Með tilliti til með samstarfsmanna okkar og meðeigenda væri best að fá úr þessu skorið. Það er ætíð best fyrir rekstur að framtíðin sé traust," segir Fensholt. "Við höfum tíma til að bíða en viljum gjarnan að ákvörðun verði tekin sem fyrst." Oscar Crohn forstjóri Straums í Danmörku sagði nýlega að margir hefðu sýnt kaupum á Magasin áhuga. Þar á meðal hafi verið nokkrir með mikinn áhuga á kaupunum.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira