Bloomberg: Lokafrestur settur á tilboð í West Ham 22. desember 2009 08:25
Eigendur West Ham hafa þrjár vikur til að svara tilboðinu frá David Gold og David Sullivan í liðið. Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun um söluna á West Ham á Bloomberg fréttaveitunni.Samkvæmt heimildum Bloomberg vilja þeir Gold og Sullivan taka við stjórn West Ham áður en félagaskiptagluggi leikmanna lokar þann 21. janúar n.k. til að koma í veg fyrir að bestu leikmenn West Ham verði seldir til að laga skuldastöðu félagsins.Eins og áður hefur komið fram í fréttum hafa þeir Gold og Sullivan gert 50 milljón punda tilboð í West Ham en það er töluvert undir því verði sem Straumur vonast til að fá fyrir liðið. Þegar tilboðið lá fyrir í síðustu viku skrifuðu a.m.k. tveir breskir fjölmiðlar að því yrði að öllum líkindum hafnað.Fram kemur í umfjöllun Bloomberg að Straumur eigi von á tilboði frá Bandaríkjunum í liðið og haldi því að sér höndunum í augnablikinu. Fyrir utan Gold og Sullivan hafa tveir aðrir áhugasamir kaupendur verið í sambandi við Rothschild bankann sem sá um söluferlið. Þar er um að ræða fjárfestirinn Tony Fernandes frá Malasíu og Intermarket Group sem er fjármálafyrirtæki í London.
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira