Norska ríkið hefur fengið Kaupþingsfé sitt endurgreitt 15. maí 2009 10:33
Kristin Halvorsen fjármálaráðherra Noregs segir að yfirtakan á starfsemi Kaupþings í Noregi hafi endað á farsælan hátt. Ríkissjóður Noregs hafi nú fengið allt endurgreitt sem sjóðurinn lagði út til innistæðueigenda hjá Kaupþingi í Noregi eftir bankahrunið s.l. haust. Í frétt um málið á vefsíðunni e24.no segir að dótturfélag Kaupþings í Noregi hafi verið sett í umsjón hins opinbera eftir bankahrunið s.l. haust. Dótturfélagið var meðlimur í tryggingarsjóði innistæðueigenda sem tryggði allar upphæðir að 2 milljónum norskra kr. og tók ríkissjóður að sér að greiða þessar upphæðir strax til innistæðueigendanna. Fram kom í frétt á visir.is í lok janúar að Kaupþing myndi standa við lögbundnar greiðslur sínar til innistæðueigenda í Noregi. Alls er þar um 900 milljónir norskra kr. að ræða eða um 17 milljarða kr. sem sjóðurinn fær endurgreidda. „Þetta er farsæl saga fyrir okkur," segir Halvorsen. „Við höfum fengið fé okkar endurgreitt og verulegar eignir hafa komið í hlut Íslands vegna aðgerða okkar." Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Halvorsen hélt til að kynna norsku fjárlögin. Í endurskoðuðum fjárlögum Noregs er að finna tekjupóst upp á 382 milljónir norskra kr. eða rúmlega 7,2 milljarða kr. vegna uppgjörs á fyrrgreindum tryggingum í tengslum við Kaupþing.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira