Handbolti

Afturelding áfram í umspilinu

Patrekur Jóhannesson og félagar mæta ÍR í oddaleik í vikunni
Patrekur Jóhannesson og félagar mæta ÍR í oddaleik í vikunni

Afturelding tryggði sér í dag sæti í úrslitarimmunni um laust sæti í N1 deildinni í handbolta með því að leggja Selfoss 26-22 í öðrum leik liðanna.

ÍR knúði fram oddaleik gegn Stjörnunni með 27-25 sigri í Breiðholtinu, en liðið sem vinnur oddaleikinn mætir Aftureldingu í úrslitarimmu umspilsins.

Oddaleikur Stjörnunnar og ÍR fer fram í Garðabæ á fimmudagskvöldið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×