Svínaflensan gæti minnkað hagvöxt heimsins um 5% 28. apríl 2009 13:49
Alþjóðabankinn telur að svínaflensan gæti minnkað hagvöxt (landsframleiðslu) heimsins um 5% ef hún verður að heimsfaraldri. Til samanburðar má geta þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að hagvöxtur heimsins muni minnka um 1,3% í ár af völdum fjármálakreppunnar. „Flensufaraldur er það síðasta sem efnahagur heimsins þarf á að halda," segir Bill O' Grady yfirmaður nýmarkaðadeildar Confluence Investment Management í St. Louis í samtali við Bloomberg-fréttaveituna. „Þetta er sennilega ekki stórmál en það er alltaf möguleiki á slíku og enginn vill taka áhættu." Í umfjöllun um málið á vefsíðunni e24.no segir að 5% samdráttur á hagvexti á heimsvísu muni slá út af borðinu allar vonir um viðsnúning í kreppunni á þessu ári. Alþjóðabankinn hefur þegar brugðist við vandanum með því að veita 200 milljón dollara aukalán til að berjast gegn útbreiðslu svínaflensunnar. Áhrifa óttans gætir nú víða á mörkuðum heimsins og hafa bæði hrávörur eins og olía og hlutabréf fallið í verði undanfarna tvo daga.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira