Veiking pundsins þýðir óhreinna kókaín 27. maí 2009 12:09
Hreinleiki kókaíns á fíkniefnamarkaðinum í London er í beinu sambandi við gengi pundsins að því er segir í umfjöllun um málið á Bloomberg-fréttaveitunni. Bloomberg birtir daglega það sem kallast „línurit" dagsins þar sem sýnt er samhengi milli ýmissa efnahagslegra þátta og stærða. Í dag er línuritið nokkuð óvenjulegt því það sýnir sambandið á milli hreinleika kókaíns og gengi pundsins. Fram kemur að á síðustu 12 mánuðum hefur hreinleiki kókaínsins minnkað úr 32% og niður í 22% í London. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem tæknifyrirtækið Forensic Science Service framkvæmdi. Axel Klein sérfræðingur í misnotkun eiturlyfja hjá háskólanum í Kent segir að þetta megi rekja til veikingar pundsins á sama tímabili. En einnig megi nefna harðari aðgerðir lögreglu gegn þeim sem standa að baki götusölunni á kókaíni í Bretlandi.„Heildsalarnir verða nú að borga hærra verð fyrir vöruna og til að halda götuverðinu stöðugu verða þeir að minnka hreinleikann," er haft eftir sérfræðingi í rannsóknum á alvarlegri skipulagðri glæpastarfsemi í Bretlandi.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira