Íhuga að greiða launabónusa fyrr til að forðast tekjuskattshækkun Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. ágúst 2009 11:13
Stjórnendur fjárfestingabanka í Bretlandi sem greiða starfsmönnum yfirleitt launabónusa í apríl og maí velta því fyrir sér að greiða launabónusa fyrr á næsta ári en vanalegt er. Ástæðan er sú að gert er ráð fyrir að lög sem kveða á um 10% hækkun tekjuskatts á laun yfir 150 þúsund pund taki gildi 5. apríl. Launanefnd Nomura, sem hefur um 4000 starfsmenn á sínum vegum eftir að starfsemi Lehman Brothers í Bretlandi var tekin yfir á síðasta ári, hugðist greiða bónusa þann 12. apríl en er að hugsa um að breyta því. Aðrir bankar sem eru að hugsa sinn gang eru Rothschild bankinn og japanski bankinn Daiwa. Á breska vefnum Timesonline segir að bankamenn verði að hugsa málin í þaula þegar kemur að slíkum ákvörðunum því að þær geti verið teknar sem enn eitt dæmi um græðgi bankamanna. Líklegt er að stjórnmálamenn muni líta slíka ákvörðun hornauga.
Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira