Breskir leigusalar gætu tapað á Mosaic 1. mars 2009 09:43 Karen Millen er ein af verslunum Mosaic.
Breskir leigusalar gætu þurft að sætta sig við að veita allverulegan afslátt af leiguverði í yfir 500 verslunum víða um Bretland í kjölfar greiðslustöðvunar Mosaic, sem er í 49% eigu Baugs. Kaupþing sem lánaði Mosaic 400 milljón pund mun festa kaup á fjögur af stærsu merkjum keðjunnar strax en það eru Karen Millen, Coast, Oasis og Warehouse. Kaupin verða gerð í samvinnu við Derek Lovelock forstjóra Mosaic og aðra lykilstjórnendur sem munu eignast 5-10% í félaginu. Neville Kahn hjá Deloitte hefur verið skipaður til þess að sjá um greiðslustöðvun félagsins. Kaupþing og Lovelock hafa sagst ætla að tryggja að lánadrottnar félagsins fái að fullu greitt, þrátt fyrir greiðslustöðvunina. Það er Timesonline sem greinir frá þessu í dag en þar segir einnig að heimildarmaður innan Mosaic segi að áætlunin sé svipuð því sem kallað er skipti á skuldum fyrir hlutafé. Kvennfataverslunin Principles og Shoe Studio verða seld í sitthvoru lagi. Sérfræðingar eru vantrúaðir á að verslunum Principles verði bjargað, sem aftur leiðir af sér ótta um að hundruðum verslana verði lokað í kjölfar greiðslustöðvunarinnar. Mosaic hefur einnig áform um að loka óarðbærum einingum í öðrum keðjum sem hluta af endurskipulagningunni.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira