Tugum milljarða í norskum seðlum smyglað úr landi 30. júní 2009 08:55
Talið er að tveimur til þremur milljörðum norskra króna í stórum peningaseðlum, eða 40 til 60 milljörðum kr., sé smyglað út úr Noregi á hverju ári. Þetta kemur fram í umfjöllun Finansavisen um málið. Þar segir að 500 milljónir í seðlum hafi verið gefnar upp við tollyfirvöld við brottför í fyrra. Til baka inn í landið komu 10 milljarðar. Stór hluti af þessu eru löglegar færslur fram og til baka. Nefna má að Norðmenn nota mikið sína eigin mynt í verslunarferðum til Svíþjóðar og víðar en ekki þarf að gefa upp peningamagn sem er undir 25.000 norskum kr. við brottför úr landinu. Þar að auki taka innflytjendur oft með sér norskar krónur þegar þeir ferðast til heimalands síns ef viðkomandi land er með veikt bankakerfi. „Stór hluti af þeim seðlum sem koma til baka eru nýir og ónotaðir þúsund króna seðlar. Þessir seðlar koma ekki frá verslunum í Nordby í Svíþjóð. Stór hluti þeirra kemur fram Suðaustur-Asíu," segir Björn Röse forstjóri Tollgæslunnar í Noregi. „Þetta eru peningar sem koma frá skipulagðri glæpastarfsemi og svartri atvinnustarfsemi." Röse telur að allt að þriðjungur fyrrgreindar heildarupphæðar, eða 2 til 3 milljarðar séu seðlar sem fyrst hefur verið smyglað út úr Noregi áður en þeir koma aftur til landsins.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira