Fékk 130 milljarða kr. inn á bankareikning sinn vegna mistaka 25. febrúar 2009 14:24
Það hlýtur að vera draumur allra í fjárhagskreppunni að fá óvænt tæpa 130 milljarða kr. setta inn á bankareikninginn sinn. Það gerðist hjá hinni sænsku Corneliu Johansson sem fékk þessa upphæð setta inn á reikning sinn hjá Nordea bankanum. Kærasti Corneliu segir í samtali við Göteborg Posten að samkvæmt yfirliti hafi innistæðan á reikningi Corneliu allt í einu sýnt stöðu upp á rúma 10 milljarða sænskra kr.. Og útskýringin sem fylgdi með var að þetta væri uppgjör eftir skortsölu. Cornelia og kærastinn biðu í nokkra daga og þegar ekkert frekar gerðist ákváðu þau að hafa samband við Nordea og greina þeim frá þessari færslu. Kom þá í ljós að bankinn hafði gert tæknileg mistök og sett þessa upphæð inn á rangan reikning. Það fylgir með sögunni að samkvæmt sænskum lögum ber viðkomandi ekki skylda til að tilkynna um mistök sem þessi en að hinsvegar sé ólöglegt að nota peninga sem viðkomandi veit að hann á ekki.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira