Arabískir olíusjeikar á flótta frá Las Vegas 24. mars 2009 13:17
Vellauðugir olíusjeikar frá Dubai eru nú að koma sér undan því að fjárfesta áfram í stærsta hóteli og spilavíti Las Vegas borgar. Las Vegas hefur orðið illilega fyrir barðinu á fjármálakreppunni og viðskiptin þar eru ekki nema svipur hjá sjón m.v. fyrri ár. Í frétt um málið á business.dk segir að fjárfestingin sem hér um ræðir gangi undir nafninu Citycenter og hefur MGM Mirage unnið að framgangi málsins allt frá árinu 2005. MGM er stærsti eigandi spilavíta í Las Vegas og rekur tíu slík í borginni. Í Citycenter er gert ráð fyrir hóteli upp á 61 hæð með um 4.000 herbergjum auk tilheyrandi spilavítasala, veitingahús og verslunarkjarna. Árið 2007 var kostnaðurinn við bygginguna áætlaður rúmlega 800 milljarðar kr. en í dag er talið að byggingin kosti ekki undir um 1.000 milljörðum kr. Fjárfestingarsjóðurinn Dubai World, sem er í eigu konungsfjölskyldunnar þar í landi, á samkvæmt samningum að leggja til helming af kostnaðinum við bygginguna. Hefur sjóðurinn þegar lagt til rúmlega 400 milljarða kr. í verkið en segir nú hingað og ekki lengra. Dubai World hefur nú höfðað mál gegn MGM Mirage til að slíta samstarfi þeirra. Grundvöllur málsóknarinnar er að MGM Mirage hefur tilkynnt að hætta sé á að félagið stefni í gjaldþrot. Dubai World hefur þegar haldið eftir greiðslu til Citycenter upp á um 115 milljarða kr. og talið er að ef sú greiðsla fæst ekki í gegn geti MGM Mirage ekki lengur greitt af gríðarlegum skuldum sem félagið hefur safnað við að koma CityCenter upp af grunninum. Því gæti svo farið að verkið verði gjaldþrota áður en búið er að snúa rúllettuhjólunum einn einasta hring.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira