Toyota dregur úr starfsemi í Bandaríkjunum 15. febrúar 2009 15:21
Japanski bílaframleiðandinn Toyota neyðist til að draga úr starfsemi sinni í Bandaríkjunum. Nýverið var tilkynnt að laun starfsmanna í Bandaríkjunum yrðu lækkuð, vinnutími styttur, yfirvinna bönnuð og að engin framleiðsla verði í nokkra daga í apríl. Samdráttur í sölu vinsælustu Toyota-bílanna, Corolla og Camry, nam 15 prósentum árið 2008 en hefur orðið enn meiri frá áramótum. Auk framangreindra ráðstafana hefur öllum bónusgreiðslum til yfirmanna verið sópað út af borðinu og þá hefur fyrirtækið hefur hætt við byggingu nýrrar verksmiðju í Mississippi. Í byrjun febrúar tilkynnti bílaframleiðandinn að fyrirtækið gerir ráð fyrir að tapa 450 milljörðum jena, jafnvirði rúmlega 560 milljarða króna, vegna samdráttar á bílamarkaði á síðasta ári. Það er þrisvar sinnum meira en fyrri spá bílaframleiðandans hljóðaði upp á. Síðasta spá var gefin út í enda síðasta árs. Þetta verður jafnframt fyrsta tap bílaframleiðandans í 70 ár.
Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira