Franskir ofnasmiðir fækka fötum til að bjarga störfum sínum 31. ágúst 2009 14:24
Starfsmenn hjá frönsku ofnasmiðjunni Chaffoteaux et Maury í Brittany ætla að fækka fötunum til að reyna að bjarga störfum sínum. Þeir ætla að koma fram naktir á dagatali í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga 204 störfum í verksmiðju sinni. Í frétt um málið á ananova.com segir að 13 naktir ofnasmiðir muni prýða dagatalið en hjálmar og öryggisgrímur verða staðsettar á „viðkvæmum" stöðum í myndatökunum. Samkvæmt áætlun ofnasmiðanna er ætlunin að nota hagnaðinn af sölu dagatalsins til að efna til hópferðar til Ítalíu þar sem móðurfélag ofnasmiðjunnar, Ariston Thermo Group, er staðsett. Þar ætla þeir svo að' efna til mótmæla vegna fyrirhugaðrar lokunnar á verksmiðjunni í Brittany. Fulltrúi verkalýðsfélags starfsmannanna, Brigitte Coadic, segir að með Þessu vilji starfsmennirnir sýna að þeir eru reiðubúnir til að grípa til allra tiltækra ráða til að bjarga störfum sínum..."jafnvel fara úr fötunum".
Mest lesið Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða Spar Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira