Álverðið fór í 2.037 dollara á tonnið í morgun 18. nóvember 2009 08:43
Heimsmarkaðsverð á áli fór í 2.037 dollara á tonnið á markaðinum í London í morgun m.v. þriggja mánaða framvirka samninga og hefur verðið ekki verið hærra í ár. Það hefur tvisvar áður farið yfir 2.000 dollara í ár, í síðasta mánuði og í sumar.Þegar álverðið fór í 2.010 dollara á tonnið í lok síðasta mánaðar fjallaði hagfræðideild Landsbankans um verðið í Hagsjá sinni. Þar sagði að álframleiðendur hafi dregið úr birgðastöðu samhliða fremur óhagstæðri verðþróun samkvæmt upplýsingum Alþjóða álstofnunarinnar, International Aluminium Institute.Gögn hennar sýna að frá því verð tók að þokast upp á við á ný samhliða viðsnúningi í efnahagskerfi heimsins í mars síðastliðnum hefur dregið úr álbirgðum á heimsvísu. Í júlí var lækkun birgðastöðu rúm 21% frá fyrra ári en í september nam lækkunin 24%Verðmæti útflutts áls fyrstu átta mánuði ársins var 34% af heildarverðmæti íslensks útflutnings samkvæmt sundurliðun Hagstofunnar. Að magni til jókst álútflutningur um 12,6% frá fyrstu átta mánuðum ársins 2008 en sökum slakrar verðþróunar var verðmæti álútflutnings 3% rýrara á þessu ári en árinu áður.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira