Formúla 1 líkleg í Róm 2012 27. maí 2009 10:46 Ferrari á götum Rómar vegna vinnslu auglýsingaherferðar. Mynd: AFP
Rómverjar á Ítalíu eru metnaðarfullir. Í dag er allt á hvolfi útaf úrslitlaleiknum í Meistaradeildinni en árið 2012 vill borgarstjórnin halda Formúlu 1 mót á götum Rómar. Búið er að gera plan af braut sem Hermann Tilke frá Þýskalandi hefur hannað, en hann hefur haft umsjón með hönnun allra Formúlu 1 brauta sem hafa litið dagsins ljós síðustu ár. Þá hefur hann gert ýmsar endurbætur á gömlum brautum eftir óskum FIA. Þrjár götubrautir eru í notkun í dag. Það er í Mónakó, sem var keppt á um síðustu helgi, Í Valencia á Spáni og í Singapúr. Brautin í Valencia þótti ekki bjóða upp á sérlega skemmtilegan kappakstur í fyrra, en mótið í Singapúr var flóðlýst og heppnaðist sérlega vel. Þá verður ekið á nýrri braut í Abu Dhabi, sem er um götur hafnarsvæðis rétt utan borgarmarkanna. Verði mótshald staðreynd í Róm árið 2012, þá er það hluti af hugmyndum Bernie Ecclestone um að götuvæða Formúlu 1 í þekktum borgum, eins og London, Moskvu og New York.
Mest lesið „Fór að hugsa hvað ég væri eiginlega að gera“ Handbolti Í beinni: Fram - Haukar | Barist um bikarinn Handbolti Hefur Amorim bætt Man United? Enski boltinn „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Íslenski boltinn „Þakka Alberti frá dýpstu hjartarótum“ Fótbolti Sló heimsmetið í ellefta sinn sama dag og hann gaf út sitt fyrsta lag Sport Messi var óánægður hjá PSG Fótbolti Hafa tapað ellefu af tólf úrslitaleikjum en eini sigurinn kom gegn Stjörnunni Handbolti Dagskráin í dag: Liverpool-banarnir í Plymouth mæta til Manchester Sport „Ég er stríðsmaður og hef lent í þessu áður“ Körfubolti Fleiri fréttir Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúlu 1 ungstirnið viðurkennir að hafa fallið á ökuprófinu Eiginkona Michael Schumacher í áfalli Dómur fallinn: „Þetta var viðbjóðslegt af mér og ég tek fulla ábyrgð“ Sjá meira