Hermann Maier hættur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. október 2009 15:00 Hermann Maier átti erfitt með sig á blaðamannafundum í dag. Mynd/AP
Skíðakappinn Hermann Maier tilkynnti í dag að hann væri hættur keppni í alpagreinum í skíðum vegna þrálátra meiðsla. Maier er 36 ára gamall Austurríkismaður og með allra frægustu skíðaköppum heims undanfarin þrettán ár. Hann vann gullverðlaun í stórsvigi og risasvigi á vetrarólympíuleikunum í Nagano árið 1998 og fékk svo silfur og brons á leikunum í Tórínó árið 2006. Hann vann einnig á sínum ferli þrjá heimsmeistartitla auk þess sem hann var sigursæll á heimsbikarmótaröðinni þar sem hann fagnaði sigrum í alls 54 mótum. Maier meiddist á hné í mars síðastliðnum en hafði stefnt að því að keppa í Kanada í lok næsta mánaðar. „Ég hef ákveðið að ljúka mínum ferli í skíðaíþróttum. Ákvörðunin var reyndar tekin fyrir mig,“ sagði hann tárvotur á blaðamannafundi í dag. Maier slasaðist lífshættulega í mótorhjólaslysi í ágúst árið 2001 og missti hann af þeim sökum af öllu næsta keppnistímabili sem og Ólympíuleikunum í Salt Lake City í Bandaríkjunum árið 2002. Hann byrjaði þó aftur að keppa í janúar 2003 og vann marga frækna sigra eftir það.
Erlendar Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart umhverfi“ Fótbolti David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Enski boltinn Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Enski boltinn „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn Enski boltinn Fleiri fréttir Þórir hefur ekki áhuga Hemmi Hauks valdi besta KR-ing sögunnar: „Þetta er svo vont“ Stjóri Liverpool neitaði að tjá sig um Kvaradona orðróminn David Moyes aftur orðinn knattspyrnustjóri Everton Þarf að vera klár á hverjum degi: „Stíg inn í mjög hart umhverfi“ „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Dagskráin: Úrslitakeppni NFL af stað og þrír leikir í enska bikarnum Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Uppgjörið: Stjarnan-KR 94-86 | Stjörnumenn tóku aftur til sín toppsætið Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Það er ekki flugeldasýning í hverjum leik“ Schick stjarnan í sterkum sigri Finnur foxillur: „Bara hrikaleg frammistaða” Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Uppgjörið: Þór Þ.-Valur 94-69 | Þórsarar rassskelltu meistarana Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Sandra og félagar sterkari á taugum í lokin Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Sjá meira