Markaðsvirði Unibrew minnkaði um 65% á þremur vikum 19. mars 2009 10:01
Markaðsvirði Royal Unibrew, næststærstu bruggverksmiðju Danmerkur, hefur lækkað um 65% á s.l. þremur vikum eða frá því að Unibrew birti ársuppgjör sitt þann 25. Febrúar. Stoðir eru einn stærsti hluthafinn í Royal Unibrew með 25% hlut. Hlutir í Unibrew féllu um 1% í kauphöllinni í Kaupmannahöfn í morgun eftir að fregnir bárust um að annar stór hluthafi í félaginu, Arlo Global Management, væri að selja hluti sína á því sem börsen.dk kallar útsölu. Hefur Arlo minnkað hlut sinn úr 11,18% og niður í 9,84% það sem af er morgninum. Unibrew skilaði tapi upp á hálfan milljarð danskra kr. eða um 10 milljarða kr. á síðasta ári. Samhliða því voru áætlanir félagsins um vöxt á næstu þremur árum slegnar af. Hlutir í Unibrew eru nú komnir niður í 39 danskra kr. sem er hið sama og þeir voru í árið 1988. Orðrómur hefur verið í gangi um að Unibrew sé nálægt því að vera gjaldþrota. Jens Houe Thomsen greinandi hjá Jyska Bank segir að viðbrögð markaðarins bendi til þess að gjaldþrotahættan hjá félaginu sé ekki aðeins kenning.
Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira