Hafa tapað fyrsta heimaleik í úrslitakeppni síðustu sex ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2009 16:30 KR hefur ekki unnið fyrsta heimaleik í úrslitakeppni síðan að Jón Arnór var síðast með. Mynd/Vilhelm
Deildarmeistarar KR-inga leika í kvöld sinn fyrsta leik í átta liða úrslitum úrslitakeppni Iceland Express deildar karla þegar þeir taka á móti Blikum í DHL-Höllinni. KR-liðið vonast þar til að breyta slæmum ávana undanfarinn ára því liðið hefur ekki unnið fyrsta heimaleik sinn í úrslitakeppni síðan árið 2002. KR hefur einnig tapað fyrsta leik í úrslitakeppninni undanfarin þrjú ár og í öll skiptin hefur þessi leikur farið fram á heimavelli þeirra í DHL-Höllinni. KR-ingar unnu síðast fyrsta leik í úrslitakeppni 10. mars 2005 þegar þeir sóttu 89-91 sigur í Stykkishólm. Það þarf að fara miklu lengur aftur til þess að finna sigur hjá KR-liðinu í fyrsta heimaleik sínum í úrslitakeppni. KR hefur tapað fyrsta heimaleik sínum í úrslitakeppni undanfarin sex tímabil þar af hefur það verið annar leikur liðsins í úrslitakeppni í tvö skipti. Það ætti líka að færa KR-liðinu sjálftraust að vita af Jóni Arnóri Stefánssyni með í för því síðasti sigur KR í fyrsta heimaleik sínum í úrslitakeppni var einmitt þegar Jón Arnór var síðast með liðinu í þeirri stöðu. Jón Arnór var þá með 19 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar í 91-87 sigri á Hamar 14. mars 2002. Það ætti að vera óhætt fyrir KR-inga að fara bjartsýnir inn í einvígið á móti Blikum enda unnu þeir leiki liðanna í deildinni í vetur með samtals 69 stigum þrátt fyrir að hvorki Jón Arnór Stefánsson né Helgi Már Magnússon hafi spilað með í seinni leiknum. Fyrsti heimaleikur KR í úrslitakeppni karlakörfunnar: 2008 ÍR (Leikur 1) 76-85 tap 2007 ÍR (Leikur 1*) 65-73 tap 2006 Snæfell (Leikur 1*) 68-71 tap2005 Snæfell (Leikur 2) 57-82 tap 2004 Grindavík (Leikur 2) 95-108 tap 2003 Njarðvík (Leikur 1) 87-90 tap2002 Hamar (Leikur 1*) 91-87 sigur* KR komast áfram í undanúrslit
Dominos-deild karla Mest lesið Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira