Kolaport fyrir milljarðamæringa á netinu 11. nóvember 2009 15:05 Gullsleginn og demantprýddur iPhone til sölu á billionaireXchange.com. Lágmarksboð í hann er 3,9 milljónir kr.
Milljarðamæringar hafa nú fengið sinn eigin útimarkað eða kolaport á netinu. Síðan heitir billionaireXchange.com og þar getur maður m.a. skipta á villunni sinni í Beverly Hills fyrir víngarð í Frakklandi. En það fylgir eitt skilyrði því að fá að versla á þessari vefsíðu. Viðkomandi þarf að geta skjalfest að hann eigi a.m.k 250 milljónir kr. í lausafé. Síðan hefur verið í undirbúningi í tíu mánuði en er nú opin fyrir viðskipti. Samkvæmt frétt á business.dk eru um 100 auglýsingar um hluti til sölu á vefsíðunni. Þar má kaupa snekkjur, þotur, þyrlur og dýra bíla eins og Bugatti og Ferrari. Ein höll finnst þar einnig og nokkrar geðveikt dýrar íbúðir eins og það er orðað á business,dk. Þrátt fyrir skilyrðinum um lausafjárstöðu hafa þegar 26.000 manns skráð sig á billionaireXchange.com. Stjórnendur síðunnar taka að sér að tryggja að þeir hlutir sem eru til sölu finnist í raunveruleikanum, sé hin ekta vara og að seljandinn sé hinn rétti eigandi. Kaupin fara þannig fram að söluandvirðið er sett inn á lokaðan reikning þar til bæði seljandi og kaupandi eru samþykkir því að opna hann. Cuntin Thompson forstjóri vefsíðunnar segir í samtali við Forbes að síðan hafi þegar gert 68 sölusamninga og að andvirði þeirra sé 22,5 milljarður kr. Af þeirri upphæð er söluþóknunin til billionaireXchange.com um 1,1 milljarður kr.
Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira