Góðverkin tala Steinunn Stefánsdóttir skrifar 6. mars 2009 10:22 Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins vöktu strax athygli þegar þau voru veitt í fyrsta sinn árið 2006. Með árunum hafa þau náð að festa sig æ betur í sessi. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins vöktu strax athygli þegar þau voru veitt í fyrsta sinn árið 2006. Með árunum hafa þau náð að festa sig æ betur í sessi. Þegar Samfélagsverðlaunin voru veitt fyrst voru uppgangstímar á Íslandi. Raunar stóð það tímabil sem kallað hefur verið góðærið fram um síðustu Samfélagsverðlaunahátíð í fyrra. Samfélagsverðlaunin eru því að þessu sinni veitt í fyrsta sinn í gerbreyttu samfélagi. Innsendar tilnefningar lesenda og val dómnefndar mótaðist að einhverju leyti af þessu. Þó er það þannig að á öllum tímum eru unnin kærleiksverk í hljóði og það var einnig gert meðan samfélagið var, að því er virtist, afar upptekið af veraldlegum gæðum. Aldrei er þörfin fyrir náungakærleik og framlag til samhjálpar þó meiri en þegar harðnar á dalnum og svo virðist sem margir svari því kalli, enda er það svo að þótt flestir hafi nú minni fjárráð en áður þá hafa margir meiri tíma aflögu sem nýst getur samborgurum til hagsbóta. Markmiðið með veitingu Samfélagsverðlaunanna er að beina sjónum að þeim fjöldamörgu góðu verkum sem svo víða eru unnin og öllu því merka fólki sem þau vinna. Auðvitað næst ekki að fanga nema brot eða sýnishorn af þessum verkum en þau eiga það sameiginlegt að vera öðrum hvatning og til eftirbreytni. Lesendur Fréttablaðsins eiga svo sannarlega sinn skerf í Samfélagsverðlaununum. Þeir voru í ár sem fyrr ötulir við að senda inn tilnefningar. Lesendum er hér með þakkað þeirra góða framlag. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru veitt í fjórum flokkum. Fimm samtök og einstaklingar voru útnefnd af dómnefnd í hverjum þessara fjögurra flokka. Auk þess voru veitt ein heiðursverðlaun. Dómnefnd skilaði þannig 21 tilnefningu og voru tilnefndir einstaklingar, samtök og stofnanir. Allir hefðu verið vel að verðlaunum komnir og margir fleiri einnig en verkefni dómnefndar var sú ánægjulega þraut að velja. Sjálf Samfélagsverðlaunin sem nema einni milljón króna féllu í skaut Ásgarðs handverkstæðis í Mosfellsbæ. Í Ásgarði vinnur fólk með þroskaskerðingu. Lagt er upp úr að hæfileikar hvers og eins njóti sín sem best og að byggja upp góðan anda á glaðværum vinnustað. Hvunndagshetjan í ár er Bergdís Jónsdóttir sem kemur vikulega í Dagsetur Hjálpræðishersins og hirðir um fætur gesta þar. Verðlaun í flokknum Frá kynslóð til kynslóðar komu í hlut Norðlingaskóla, eins af yngstu skólum borgarinnar, sem þegar hefur getið sér gott orð fyrir margvíslegt frumkvöðlastarf. Í flokknum Til atlögu gegn fordómum hlaut Rauði krossinn á Akranesi viðurkenningu fyrir þátt sinn í góðri aðlögun hóps palestínskra flóttamanna sem fluttust á Akranes í haust sem leið. Heiðursverðlaunin komu í ár í hlut Jóhönnu Kristjónsdóttir rithöfundar fyrir hjálparstarf í Jemen og kynningu á menningu Mið-Austurlanda á Íslandi. Mikilvægt er að halda því til haga sem vel er gert í þjóðfélaginu. Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins eru viðleitni til þess. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hægrisveiflan ýkta Egill Ö. Hermannsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir Skoðun Ráðherrann sem skiptir litlu máli Arnar Sigurðsson Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson Skoðun Eru jólin hátíð barnanna eða bara þeirra sem hafa efni á þeim? Inga V. Henriksen Bergdal Skoðun Vafasama Viðreisn Júlíus Valsson Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun Þú átt nóg og þú ert nóg Ragnhildur Katla Jónsdóttir Skoðun Norræna módelið: Af hverju refsum við kaupendum en ekki þeim sem selja? Drífa Snædal Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun
Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest Bryndís Snæbjörnsdóttir Skoðun