Heldur spennan áfram í leikjum Snæfells og Stjörnunnar? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2009 15:15 Justin Shouse er að spila á móti sínum gömlu félögum. Mynd/Daníel
Fyrsti leikur einvígis Snæfells og Stjörnunnar í 8 liða úrslitum Iceland Express deildar karla hefst klukkan 16.00 í Fjárhúsinu í Stykkishólmi. Snæfell endaði í 3. sæti og Stjarnan í því sjötta en bæði lið hafa spilað mjög vel eftir áramót. Leikir Snæfells og Stjörnunnar hafa verið spennandi í vetur. Snæfell vann fyrri leikinn með 4 stigum, 87-83, í Hólminum í desember en Stjarnan vann aftur á móti seinni leikinn með 3 stigum, 82-79, í Garðabær á dögunum. Justin Shouse hefur leikið mjög vel á móti sínum gömlu félögum í þessum tveimur leikjum en hann er með 24 stig, 10 stoðsendingar og 3,5 stolna bolta að meðaltali í þeim. Shouse tryggði líka Snæfelli sigurinn í seinni leiknum með því að skora átta síðustu stig liðsins í leiknum og þar á meðal sigurkörfuna. Snæfell lék ekki með fullmannað lið á móti Stjörnunni í síðasta leik liðanna þar sem Sigurður Þorvaldsson, annar spilandi þjálfara liðsins, gat þá ekki leikið með vegna meiðsla. Það var aðeins annað tap liðsins frá því í byrjun desember en hitt kom á móti KR. Snæfell hefur unnið 11 af síðustu 13 leikjum sínum en Stjörnumenn hafa á sama tíma unnið 12 af 16 leikjum sínum í öllum keppnum síðan að Teitur Örlygsson tók við liðinu í desember. Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, mætti Snæfelli í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar í fyrra þegar hann þjálfaði Njarðvík. Njarðvík var þá með heimavallarrétt en tapaði einvíginu 0-2, fyrri leiknum 71-84 í Njarðvík og þeim seinni 66-80 í Hólminum.
Dominos-deild karla Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Heimsendi HM-dómarinn fær að dæma úrslitaleik Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira