Uppstokkun hjá JJB Sports eftir eignasölu 26. mars 2009 09:32
Íþróttavöruverslankeðjan JJB Sports hefur staðfest að búið sé að reka Chris Ronnie úr forstjórastóli keðjunnar. Jafnframt var tilkynnt að David Madeley fjármálastjóri keðjunnar myndi láta af störfum.Þetta var tilkynnt eftir að David Whelan, eigandi Wigan Athletic, keypti líkamsræktarstöðvar JJB Sports í gær fyrir tæplega 13 milljarða kr.Chris Ronnie var vikið tímabundið frá störfum í janúar s.l. þegar í ljós kom að hann átti ekki lengur, ásamt Exista, 27,5% hlut í JJB Sports. Kaupþing hafði leysta hann til sín með veðkalli. Ronnie sagði þá sjálfur að hann vissi ekki að þessi hlutur hefði skipt um eigendur.Ronnie var rekinn eftir fund með stjórn JJB Sports s.l. mánudag og var ástæða brottrekstrarins sögð vera gróf mistök í starfi.Í umfjöllun í blaðinu The Times segir að samkvæmt samkomulaginu við Whelan fær JJB Sports strax 40 milljón punda greidd eða helming kaupverðsins og afganginn á næstu sex mánuðum að uppfylltum nokkrum skilyrðum.Kaupverðið fer að mestu í að greiða upp í skuldir JJB Sports við Kaupþing, Lloyds og Barcleys bankanna. Á móti munu þeir framlengja lánasamningum sínum við keðjuna.
Mest lesið Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira