Enn ein lækkanarhrinan gengur yfir 5. september 2008 09:12 Miðlari í kauphöllinni í Mumbai á Indlandi í þungum þönkum. Mynd/AFP
Gengi hlutabréfa í Kaupþingi sem skráð eru í Nasdaq-OMX kauphöllina í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa lækkað um 1,85 prósent frá upphafi viðskiptadagsins í dag og stendur í 53 sænskum krónum á hlut. Þetta er jafnfram þriðji dagurinn í röð sem gengi bréfa bankans lækkar. Þróun hlutabréfaverðsins í dag er nokkuð í samræmi við gengið á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum eftir skell í gær. Helstu hlutabréfavísitölur tóku skell í gær, féllu á bilinu um tvö til þrjú prósent, beggja vegna Atlantsála. Bæði spila vaxtaákvarðanir í Bretlandi og á evrusvæðinu inn í auk þess sem bankastjórar beggja vegna Ermasundsins dró upp dökka mynd af horfum í efnahagslífinu á seinni hluta ársins. Aukið atvinnuleysi og neikvæðar fréttir úr bandarískum smásölugeira lituðu svo stemninguna á hlutabréfamarkaði vestanhafs. Þá á hlut að máli spá franska bankans Sóciete Generale frá í gær en þar segir að lausafjárkreppan hafi valdið því að hagnaður fyrirtækja muni dragast mikið saman og að uppgör þeirra í lok árs muni sína afleita stöðu. Bankinn segir að svipuð staða sé nú komin upp og fyrir netbóluna árið 2000 og gera ráð fyrir allt að tuttugu prósenta falli á hlutabréfaverði. Nikkei-hlutabréfavísitalan í Japan féll um 2,75 prósent í dag og er það svipuð þróun á öðrum mörkuðum í Asíu. Þá hefur FTSE-vísitalan í Bretlandi lækkaði um tæp 1,7 prósent, Dax-vísitalan í Þýskalandi um 1,48 prósent og Cac-40 vísitalan í Frakklandi um 1,4 prósent. Stemningin er litlu betri á norrænum hlutabréfamörkuðum í dag en samnorræna hlutabréfavísitalan OMX-40 hefur lækkað um tæp 1,6 prósent. Mest er lækkunin í Helsinki í Finnlandi, eða upp á 1,7 prósent.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira