2020 Davíð Þór Jónsson skrifar 13. apríl 2008 07:00 Árið er 2020. Ég átti erindi austur á land og er á leiðinni heim til höfuðborgarinnar með flugi. Ég geng frá borði í Vatnsmýrinni um rana beint inn í nýlega, glæsilega flugstöð sem af einhverjum ástæðum gengur ekki undir nafninu flugstöð heldur „samgöngumiðstöð". Það er vegna þess að héðan er hægt að taka strætó og leigubíl, rétt eins og það gildi ekki um flugstöðvar almennt. ÞAÐ er vissulega lúxus að hafa flugstöð svona nálægt gamla miðbænum. Hún er í göngufjarlægð frá honum - ef gengið er þvert yfir flugbrautina. Vegna staðsetningar stöðvarinnar austan flugvallarins tekur fólk hins vegar undantekningarlaust leigubíl niður í gamla miðbæinn. Mun fleiri eiga þó auðvitað erindi í nýju miðborgina í Smáranum. Þannig að í raun er flugstöðin ekki í göngufjarlægð frá neinu nema Hótel Loftleiðum. Flugvöllurinn er reyndar í útjaðri byggðarinnar, þungamiðja hennar er í Mjóddinni. Á Reykjavíkurflugvelli er fólk á fleygiferð, enda er hann stór vinnustaður. Hér er flugþjónusta fyrir alls konar hópa ferðafólks og kaupsýslumanna, flugskólar og einkaþotuskýli. Fyrir rúmum áratug þótti nefnilega ljóst að hvergi á láglendi á suðvesturhorni landsins væri hægt að æfa snertilendingar nema einmitt í hjarta miðborgarinnar. ÉG sest upp í bílinn minn og keyri heim til mín, upp á Kjalarnes eða í Úlfarsárdal eða Kjós, sem er eini staðurinn á höfuðborgarsvæðinu þar sem hægt var að koma fyrir nýrri byggð. Ferðin tekur óratíma, enda umferðin þung og aðeins um tvær samgönguæðar að ræða milli vesturhluta borgarinnar og austurhluta hennar. Lega flugvallarins kemur í veg fyrir fleiri. Umferðin er líka þung vegna þess að dreifing byggðarinnar upp á heiðarnar umhverfis borgarlandið lengir allar vegalendir borgarbúa á milli heimilis, vinnu og annarrar þjónustu. Flugvallarsvæðið hefði getað orðið heimili 15.000 Reykvíkinga. AF hverju er þetta svona? Jú, skipulag borgarinnar tók ekki mið af þörfum borgarbúa heldur þægindum flugkennara og kröfum þeirra 20% landsmanna sem eru háð flugsamgöngum með ferðir til höfuðborgarinnar. Á sama tíma og annars staðar í álfunni var unnið að því að minnka ægivald einkabílsins í miðborgunum var ákveðið að í miðborg Reykjavíkur skyldi fólkið víkja fyrir einkaþotunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Þór Jónsson Mest lesið Opið bréf til formanns utanríkismálanefndar Haukur Arnþórsson Skoðun Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson Skoðun Staðan í viðræðum Bandaríkjanna og Grænlands Arnór Sigurjónsson Skoðun 27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason Skoðun Nú er tækifærið - vinnum saman að betri grunnskóla Hólmfríður Arna Þórisdóttir Skoðun Uppskrift að stéttskiptu samfélagi og vonleysi Davíð Bergmann Skoðun Spurningunni breytt – en ekki forsendunum Erna Bjarnadóttir Skoðun Ísland verðleggur sig út af markaði Diljá Matthíasardóttir Skoðun Hvað ég fór smám saman að skilja um Sjálfstæðisflokkinn Valerio Gargiulo Skoðun Langhundur Kristins Hrafnssonar ritrýndur Páll Steingrímsson Skoðun
Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson Skoðun
Gervigreindin bíður ekki eftir Alþingi - opnum aithingi.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,Rafn Steingrímsson Skoðun