Hamilton svívirtur í Barcelona 3. febrúar 2008 16:44 Lewis Hamilton var fórnarlamb kynþáttaníðs á Spáni í gær AFP
Lewis Hamilton hjá McLaren fékk að heyra miður fallegar athugasemdir frá áhorfendum þegar hann var við prófanir á Montmelo brautinni í Barcelona á Spáni í gær ef marka má spænska fjölmiðla. Spænska blaðið Marca greinir þannig frá því að stór hópur áhorfenda hafi hrópað svívirðingar í átt til hans þar sem hann var m.a. kallaður "svartur skítur" að sögn blaðsins. Forráðamenn McLaren fordæmdu hegðun áhorfenda og ráðstafanir verða gerðar til að þetta endurtaki sig ekki þar sem meðal annars á að setja upp girðingar við svæði McLaren liðsins. Hamilton er ekki vinsæll á Spáni eftir deilur sínar við spænska ökuþórinn Fernando Alonso þegar þeir óku saman hjá McLaren í fyrra og hafa þeir verið að skiptast á pillum í fjölmiðlum síðan. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem spænskir íþróttaáhorfendur eru til vandræða fyrir kynþáttaníð, en það er reglulegt og erfitt vandamál á knattspyrnuvöllunum í landinu.
Formúla Mest lesið Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Enski boltinn Keppandi Suður-Kóreu á Ólympíuleikunum fæddist á Íslandi Sport Orri aftur með draumainnkomu Fótbolti Trump um baulið á Vance á setningu ÓL: „Er það satt? Það kemur á óvart“ Sport Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Fótbolti Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Íslenski boltinn Martin missir af landsleikjunum Körfubolti Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Enski boltinn „Þriðji leikhlutinn fór með þetta“ Sport „Við ætlum að skemmta okkur í kvöld“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira