Enski boltinn

Terry: Ég hrækti ekki á Tevez

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
John Terry grét sorgartárum í rigningunni í Moskvu á miðvikudagskvöldið.
John Terry grét sorgartárum í rigningunni í Moskvu á miðvikudagskvöldið. Nordic Photos / AFP

John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur þvertekið fyrir það að hafa hrækt á Carlos Tevez, leikmann Manchester United, í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í vikunni.

Leikmönnunum lenti saman undir lok framlengingarinnar með þeim afleiðingum að margir aðrir leikmenn blönduðu sér í málið. Didier Drogba fékk til að mynda að líta rauða spjaldið í kjölfarið á þessu atviki.

„Það var eitthvað um ýtingar og fleira í þeim dúr," sagði Terry. „Ég viðurkenni það. En ég hrækti ekki, það er ekki mér líkt. Ég myndi aldrei hrækja á annan leikmann."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×