Djassinn vinsæll 26. ágúst 2008 06:00 Agnar Már segist vera haldinn óttablandinni spennu fyrir tónleikana.
Jasspíanistinn Agnar Már Magnússon heldur tvenna tónleika í kvöld í tengslum við Jazzhátíð Reykjavíkur. Agnar fær til liðs við sig tvo heimsþekkta tónlistarmenn, þá Ben Street og Bill Stewart sem báðir eru vel þekktir innan jasssenunnar. Sjálfur hefur Agnar vakið mikla athygli fyrir tónlist sína og vann hann meðal annars verðlaun fyrir bestu tónsmíð á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Tónleikarnir verða haldnir í Vonarsal, þar sem einn glæsilegasta flygil landsins er að finna. Tónleikar Agnars eru nú í öðru sæti á lista yfir vinsæla tónleika á netsíðunni midi.is og því fer hver að verða síðastur að tryggja sér miða á tónleikana. Aðspurður segir Agnar að fréttirnar komi honum skemmtilega á óvart. „Ég vona að sjálfsögðu að mér takist að fylla húsið. Sjálfur er ég mjög spenntur fyrir tónleikunum, en það vottar líka fyrir smá stressi þar sem þetta eru miklir og merkilegir tónlistarmenn sem ég spila með," segir Agnar að lokum.
Mest lesið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Tóti og Ósk eiga von á túrbóbarni Lífið Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana Tónlist Þessi eru tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 Lífið Fleiri fréttir Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira