Átta ára hryðjuverkamaður Óli Tynes skrifar 21. ágúst 2008 10:22
Meðal öryggisráðstafana sem bandarísk stjórnvöld hafa gert eftir 9/11 árásirnar er að búa til lista yfir grunaða hryðjuverkamenn. Sá listi er hinn undarlegasti. Er nú svo komið að fjölmiðlar eru farnir að gera grín að honum og tína til undarleg tilfelli. Meðal hinna hugsanlegu hryðjuverkamanna eru þrír sem heita James Robinson. Einn þeirra er margheiðraður fyrrverandi hershöfðingi í Bandaríska flughernum. Hann er nú flugstjóri hjá stóru flugfélagi. Öryggisnefnd bandaríska samgönguráðuneytisins hefur gefið leyfi til þess að hann beri skammbyssu í stjórnklefanum til þess að verjast hugsanlegum flugræningjum. En James Robinson er á lista alríkislögreglunnar yfir hugsanlega hryðjuverkamenn. Enginn getur sagt honum hvernig hann lenti þar. Annar James Robinson er fyrrverandi aðstoðar ríkissaksóknari í stjórnartíð Bills Clinton. Enginn getur heldur sagt honum af hverju hann er á lista FBI. Hinn þriðji James Robinson er svo tennisáhugamaður sem býr í Kaliforníu. Þar sem hann er á listanum kemst hann ekki í flugi til þess að heimsækja ömmu sína sem býr á austurströnd Bandaríkjanna. Þessi James Robinson er átta ára gamall. Hann hefur verið á lista FBI síðan hann var fimm ára gamall.
Erlent Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Óvíst hvar börnin lenda í haust Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kölluð út vegna slagsmála og svo aftur vegna berserksgangs sama manns Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Fleiri fréttir Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Sjá meira