Rio Tinto Alcan styður Gulleggið 2009 19. desember 2008 14:46
Rio Tinto Alcan (Alcan á Íslandi hf.) og Innovit nýsköpunar- og frumkvöðlasetur hafa gert mér sér samning um stuðning við frumkvöðlakeppni Innovit, Gulleggið 2009. Um er að ræða keppni meðal háskólanemenda í gerð viðskiptaáætlana og er tilhögun hennar samkvæmt fyrirmynd frá MIT háskóla í Bandaríkjunum. Keppnin var haldin í fyrsta sinn í upphafi þessa árs. Þá bárust um 100 gildar viðskiptaáætlanir og stóðu að þeim um 300 einstaklingar. Þátttökurétt í keppninni hafa allir nemendur sem skráðir eru til náms við íslenska háskóla, allir Íslendingar sem stunda háskólanám erlendis auk allra þeirra sem útskrifast hafa með háskólapróf frá íslenskum háskólum undanfarin fimm ár. Í tilkynningu um málið segir að stuðningur Rio Tinto Alcan felst í 500.000 króna fjárframlagi auk þess sem samstarf verður haft við fyrirtækið - eins og aðra styrktaraðila keppninnar - um aðkomu að námskeiðshaldi sem er hluti af keppnisferlinu. "Við viljum með þessum stuðningi leggja enn meira af mörkum til að efla þá gróskumiklu nýsköpun sem er svo mikilvæg fyrir áframhaldandi uppbyggingu íslensks atvinnulífs," segir Ólafur Teitur Guðnason, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Alcan á Íslandi. "Það gleymist stundum að upp úr rekstri álversins í Straumsvík hefur sprottið margvísleg nýsköpun. Má í því sambandi nefna vélsmiðjuna Stími, sem hannað hefur margvíslegan og hátæknilegan búnað í álverið og selur hann nú í álver í öðrum löndum. Með þessu framtaki viljum við hlúa enn frekar að því hugviti sem í Íslendingum býr og freista þess að veita því farsælan farveg."
Mest lesið Sjónvarpsstöðin Sýn verður í opinni dagskrá Viðskipti innlent SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Viðskipti erlent Tillaga Vilhjálms felld með nánast öllum atkvæðum Viðskipti innlent Samruni fyrirtækja: „Það sem ekki þarf að vera leyndarmál er ekki leyndarmál“ Atvinnulíf Nokkurra ára leit að kaupanda eigna í Helguvík lokið Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Rafbílasala tekur við sér en nær enn ekki fyrri hæðum Viðskipti innlent Gátu ekki fært sönnur á fullyrðingar um virkni sveppadropa og dufts Neytendur Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Fleiri fréttir SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira