Senna ætlar að standa undir nafni 14. nóvember 2008 07:43 Bruno Senna mun aka Honda bíl og markmiðið er að fá sæti Rubens Barrichello hjá liðinu. mynd: kappakstur.is
Bruno Senna, frændi Ayrtons Senna fær tækifæri á að senna getu sína með Honda liðinu í næstu viku og gæti komið inn sem ökumaður í stað Rubens Barrichello. Senna stóð sig vel í GP 2 mótaröðinni í ár og hefur undirbúið sig af kappi með Honda liðinu í bækistöðvunum í Englandi. "Mig hefur alltaf dreymt um að keyra Formúlu 1 bíl og það er frábært að fá tækifæri eftir aðeins fjögur ár í kappakstri", sagði Senna um málið. "Ég hef undirbúið mig vel og styrkt hálsvöðvanna sérstaklegea á æfingum í ræktinni. Þá hef ég undirbúið mig með tæknimönnum Honda í Brackley til að læra á undirstöðuatriði varðandi bílinn." Senna nafnið er frægt sökum þess að frændi Bruno, Ayrton Senna var sannkallað goð í Formúlu 1. "Ég veit að ég mun fá mikla athygli, en ég verð bara að standa undir nafni. Vona ég að ég geti sannfært Honda menn að ég eigi skilið að fá sæti í Formúlu 1", sagði Senna. Barrichello sem er landi Senna vonast til að halda sæti sínu hjá Honda, en hvorki hann né Jenson Button hafa verið staðfestir sem ökumenn liðsins á næsta ári.
Mest lesið Körfuboltaþjálfari leiddur af velli í handjárnum Körfubolti Bónus frá ríkinu, bannaða bandið og aftur hátíð fyrir Dag og hans menn Handbolti Kveður Skagafjörðinn og flytur á Skagann Körfubolti Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Enski boltinn Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur.“ Fótbolti Féll á lyfjaprófi rétt fyrir Ólympíuleika í heimalandinu Sport Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Fótbolti Með fleiri mörk með langskotum en Ísland og samt með sex færri leiki spilaða Handbolti Dagskráin í dag: Undanúrslit deildabikarsins og Lokasóknin hitar upp fyrir Ofurskálina Sport Leynast öflugar íslenskar skyttur einhvers staðar? Handbolti Fleiri fréttir Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher F1-ökumaður gagnrýndur fyrir vanvirðingu við Schumacher Komst við er hann ræddi Schumacher Þá fáum við að vita meira um líf Schumacher eftir slysið Sjá meira