Evran lækkar gagnvart flestum nema krónu 2. október 2008 11:00 Evrur hafa sjaldan verið dýrari gagnvart krónu en í dag. Á sama tíma hefur hefur hún ekki verið lægri gagnvart dollar í ár.
Gengi evru lækkaði um 0,7 prósent gagnvart Bandaríkjadal í morgun og hefur það ekki verið lægra í ár. Þá hefur evran ekki verið lægra gagnvart jeni í tvö ár. Evran kostar nú 154,8 krónur. Í gær rauf evran 157 krónu múrinn og hafði þá aldrei verið sterkari gagnvart krónunni. Evran hefur gefið talsvert eftir gagnvart helstu erlendu gjaldmiðlunum í dag - að krónu undanskilinni - en vísbendingar eru um að Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri evrópska seðlabankans, muni vara við samdrætti á evrusvæðinu á vaxtaákvörðunardegi bankans í dag, að sögn fréttastofu Bloomberg. Á móti hefur dollarinn styrkst nokkuð eftir að Öldungardeild Bandaríkjaþings samþykkti björgunaraðgerðir stjórnvalda í nótt. Bloomberg segir aðgerðirnar sýna að Bandaríkjamenn séu fljótari að bregðast við lausafjárþurrðinni sem plagað hefur alþjóðlegt fjármálakerfi en kollegar þeirra í Evrópu. Búist er við óbreyttum stýrivöxtum á evrusvæðinu í dag. Þeir standa nú í 4,25 prósentum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira