Tónlist

Andfélagslegur og kynlaus

Fyrsta plata hljómsveitar Steina, Human Comfort, er komin út.
Fyrsta plata hljómsveitar Steina, Human Comfort, er komin út.

„Þessi karakter sem ég er að búa til er andfélagslegur og kynlaus, sem eru eiginleikar sem pandabirnir hafa," segir Þorsteinn Einarsson, forsprakki poppsveitarinnar Steini. Ný plata hennar, Human Comfort, er komin út og á umslaginu er mynd af pandabirni. Segir Þorsteinn hana tilvísun í þetta „alteregó" hans sem syngur á plötunni.

Tólf lög eru á henni, þar af fjögur sem komu út á fyrstu plötu Steina sem kom út í fyrra. Fyrr á árinu vann hljómsveitin keppnina Þorskastríðið sem útgáfufyrirtækið Cod Music stóð fyrir og í framhaldinu varð þessi nýja plata að veruleika. „Þetta byrjaði sem einstaklingsverkefni þegar ég gerði demó fyrir tveimur árum. Núna hafa tveir bæst við hljómsveitina, þeir Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari og Pétur Sigurðsson bassaleikari. „Ég er með stórkostlega tónlistarmenn með mér," segir Þorsteinn, sem er undir áhrifum frá sjötta áratugnum í tónlist sinni. „Eddie Cochran og Alice Cooper, þetta er blanda af þeim tveimur. Alice Cooper útlitslega og Eddie Cochran tónlistarlega."

Útgáfutónleikar með Steina eru fyrirhugaðir á næstunni og þar verður sýnd heimildarmynd um sveitina sem Þorsteinn bjó til í Kvikmyndaskóla Íslands. Einnig hefur Þorsteinn gert nokkur myndbönd með sveitinni sem hægt er að skoða á Youtube. - fb












Fleiri fréttir

Sjá meira


×