Áhrif af fasteignalánamarkaði takmörkuð 30. ágúst 2007 11:13 Baudouin Prot, bankastjóri BNP Paribas. Mynd/AFP
Baudouin Prot, forstjóri BNP Paribas, eins stærsta banka Frakklands, varði í dag ákvörðun bankans að skrúfa fyrir þrjá sjóði sína fyrir nokkru til að koma í veg fyrir lausafjárþurrð vegna samdráttar á bandarískum fasteignalánamarkaði. Hann segir frönsk fjármálafyrirtæki ekki eiga á hættu að lenda í vandræðum vegna hræringanna í Bandaríkjunum. Bankinn taldi hættu á að sjóðir bankans gætu tæmst vegna aukinna vanskila á bandarískum fasteignalánamarkaði í byrjun ágúst en bankinn hafði fjárfest í annars flokks lánasöfnum í Bandaríkjunum. Hann skrúfaði fyrir veitingu úr sjóðunum 9. ágúst síðastliðinn vegna yfirvofandi hættu á lausafjárskorti og varð það til þess að taugatitrings gætti á evrópskum fjármálamörkuðum. Sjóðurinn opnaði fyrir sjóðina á nýjan leik í síðustu viku en samkvæmt Prot nam heildartap sjóðanna af lánasöfnunum einungis um tveimur prósentum af heildarvirði þeirra, að sögn fréttastofunnar Associated PressProt sagði hins vegar í blaðaviðtali í dag að áhrifin af samdrættinum vestanhafs yrðu að öllum líkindum takmörkuð og bætti við að mál bankans hefði verið blásið upp í fjölmiðlum.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent