Nokkrir sitja um hlut Nasdaq í LSE 26. ágúst 2007 21:37 Breska kauphöllin í Lundúnum. Bandaríski hlutabréfamarkaðurinn Nasdaq á 31 prósents hlut í breska markaðnum. Margir hafa áhuga á að kaupa hlutinn. Mynd/AFP
Nokkrar af helstu kauphöllum Evrópu og asískur fjárfestingasjóður hafa kannað möguleikann á því að kaupa hlut bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi (LSE). Nasdaq á 31 prósents hlut í LSE en hefur ekki ákveðið hvort helmingur hlutarins eða meira verði seldur. Á meðal hugsanlegra kaupenda er kauphöllin í Dubai. Á meðal þeirra sem hafa viðrað áhuga á hlutnum eru þýska kauphöllin í Frankfurt, asíski fjárfestingasjóðurinn Temasek og kauphöllin í Dubai. Kaupverð er talið hlaupa á um 797 milljónum punda, jafnvirði 104 milljarða íslenskra króna. Breska dagblaðið Sunday Times segir Temasek þegar hafa boðið 800 milljónir punda, rúma 104 milljarða króna. Fjölmiðlar hafa ýjað að því að komin sé upp einkennileg staða fyrir Nasdaq hvað síðasttalda aðilann varðar en stjórnendur Nasdaq og kauphallarinnar í Dubai eiga þessa dagana í yfirtökubaráttu um norrænu kauphallarsamstæðuna OMX, sem rekur kauphallir víða á Norðurlöndum, þar á meðal hér, og í Eystrasaltsríkjunum. Salan á hlut Nasdaq í LSE mun einmitt vera tilkominn að hluta til að fjármagna kaupin og styrkja fjárhagslegar stoðir Nasdaq í baráttunni um OMX-samstæðuna. Hvað sem því líður hefur hvorki verið ákveðið hver eða hverjir kaupi hlutinn í LSE af Nasdaq né hvort hann falli í skaut einum aðila eða fleirum. Breska ríkisútvarpið bendir hins vegar á að kaupi einn aðili hlutinn verði sá hinn sami kominn í aðstöðu til að taka yfir allt hlutafé í LSE. Nasdaq reyndi nokkrum sinnum í fyrra að kaupa LSE en mistókst. Í tilboðsferlinu safnaði kauphöllin hins vegar grimmt bréfum í LSE, sem markaðurinn hyggst nú koma í verð.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent