Þjóðstjórn leyst upp Guðjón Helgason skrifar 14. júní 2007 18:54 Bardagamenn á Gaza í dag. MYND/AP
Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, ætlar að leysa upp þriggja mánaða þjóðstjórn Palestínumanna og lýsa yfir neyðarástandi á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Blóðugir bardagar hafa geisað á Gaza síðustu daga og allt stefnir í að Hamas-samtökin nái þar yfirráðum. Heimildarmenn nátengdir Abbas greindu frá því nú skömmu fyrir fréttir að stjórnin yrði leyst upp og neyðarástandi lýst yfir á Vesturbakkanum og Gaza-svæðinu. Búist er við formlegri yfirlýsingu í kvöld. Hart hefur verið barist á Gaza síðustu daga og í dag féllu minnst tuttugu Palestínumenn í átökum - og það þrátt fyrir að Abbas og Ismail Haniyeh, forsætisráðherra og forvígismaður Hamas, hefðu hvatt liðsmenn sína í gær til að leggja niður vopn. Herskáir Hamas-liðar lögðu í dag undir sig byggingu öryggissveita Fatah í Gaza-borg, höfuðstöðvar leyniþjónustunnar og nær allt landsvæði sem tilheyrir Rafah. Stjórnmálaskýrendur segja stöðu Abbas erfiða. Hann ráði enn á Vesturbakkanum en það fjari undan valdi hans á Gaza. Erfitt verði fyrir hann að ná tökum á ástandinu þó lýst hafi verið yfir neyðarástandi. Stjórnmálaskýrendur segja hættu á að Palestínumenn klofni í fylkingar Fatah á Vesturbakkanum og Hamas á Gaza-svæðinu. Arababandalagið segir að bardögum veðri að linna, þeir skemmi fyrir málstað Palestínumanna. Yves Daccord, upplýsingarstjóri Alþjóða Rauða krossins, er staddur hér á landi. Hann hefur áhyggjur af ástandinu. Hann segir upplýsignar berast frá fulltrúum Rauða krossins um mikið mannfall. Barist sé inni á sjúkrahúsum sem valdi miklum áhyggjum. Mikilvægt sé að deilendur fylgi lögum og virði rétt almennra borgara.
Erlent Fréttir Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira