Innlent

Útstrikanir Björns enn í talningu

Útlit er fyrir að útstrikanir á Birni Bjarnasyni og Árna Johnsen verði til þess að færa þá niður um eitt sæti á listum sínum. Enn er verið að telja atkvæði með útstrikunum.

Á Suðurlandi strikaði ríflega fimmtungur kjósenda flokksins yfir nafn Árna Johnsen. Þetta veldur því að Kjartan Ólafsson færist upp fyrir Árna og verður annar kjördæmakjörinn þingmaður flokksins í Suðurkjördæmi en Árni verður þriðji. Björk Guðjónsdóttir er nýr þingmaður flokksins, fjórði þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi.

Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar, átti von á því aðspurður að skila landskjörstjórn niðurstöðunni úr kjördæminu síðar í dag.

Ekki liggur enn fyrir hversu margir strikuðu Björn Bjarnason dómsmálaráðherra út, en hann var í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Sveinn Sveinsson, formaður kjörstjórnar, segir að unnið sé að því að fara yfir þessi atkvæði auk þeirra atkvæða þar sem kjósendur breyttu röð frambjóðenda. Þetta sé seinleg vinna og gæti tekið nokkra daga.

Nokkrir heimildarmenn fréttastofu sem störfuðu að talningu atkvæða telja að allt að 20% kjósenda Sjálfstæðisflokks hafi strikað yfir nafn dómsmálaráðherrans. Þetta er ágiskun og mat á stærð staflanna með útstrikuðum kjörseðlunum.

Ef þetta reynist rétt er að minnsta kosti ljóst að Björn færist niður fyrir Illuga Gunnnarsson og verður þriðji kjördæmakjörinn þingmaður flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Til þess að fella mann niður um sæti þarf um tíu prósent kjósenda að strika yfir hann. Tvöfallt fleiri þarf til að fella Björn niður um tvö sæti - niður fyrir þingkonuna Ástu Möller.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×