Mátti dúsa í dýflissu Guðjón Helgason skrifar 12. maí 2007 19:45
Þrítug tékknesk kona á yfir höfði sér átta ára fangelsisdóm fyrir að hafa hlekkjað átta ára son sinn nakinn niður og lokað hann í kjallara á heimili þeirra. Tilviljun ein réð því að nágrannar konunnar fundu strákinn. Nágrannar konunnar keyptu sér fyrr í vikunni sérstakar eftirlitsmyndavélar til að koma fyrir á heimili sínu, að þeirra sögn vegna þess að húsmóðirin ætti von á barni og myndavélarnar yrðu notaðar til að hafa auga með hvítvoðungnum þegar hann eða hún kæmi í heiminn. Myndavélarnar fóru hins vegar yfir á aðra tíðni en þær áttu að nema og hjónin sáu þá myndir af átta ára strák nágrannakonunnar. Hann sat þar nakinn í járnum í dimmu litlu herbergi. Lögrega fann dreginn í kjarlaranum og hafði hann orðið fyrir miklu vökvatapi. Herbergið var tæpir tuttugu fermetrar að stærð gluggalaust og illa lyktandi. Móðir hans hafði lokað hann þar inni hvað eftir annað á hálfs árs tímabili að því er virðist fyrir léttvæg strákapör. Drengurinn er heyrnaskertur. Hann fékk hvorki vott né þurrt meðan hann mátti dúsa í dýflissunni og þess fyrir utan var honum gert erfitt að eiga eðlileg samskipti við önnur börn. Drengurinn hefur nú að vonum verið tekinn frá móður sinni og er í gæslu yfirvalda. Konan á nú yfir höfði sér átta ára fangelsi fyrir athæfi sitt.
Erlent Fréttir Mest lesið Öll áhöfnin talin af Erlent Fólk komi rautt í framan eins og humar Innlent Keyrði rútu á 20 km/klst frá BSÍ í Hafnarfjörð: „Kannski á ég eftir að fá símtöl“ Innlent Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Erlent Gríðarlegt safn bóka fannst við tiltekt í Valhöll Innlent Óvissa með haustið en sér nú vonarglætu Innlent Þetta fær Hildur í laun Innlent Kannaðist við að hafa ekið á níu ára stúlku og stungið af Innlent Skaðinn sem þau hafi þurft að þola „óásættanlegur með öllu“ Innlent Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erlent Fleiri fréttir Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Réðust á dómkirkjuna í Kænugarði Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Lét Netanjahú heyra það í símtali þeirra: „Ég varð svo brjálaður“ Tólf fórust þegar flugvél hrapaði í Missouri Friðarviðræður sagðar í uppnámi Virðast ekki vilja takmarka sig við tíu milljónir Vonast til þess að fá friðarsamkomulag í afmælisgjöf Spánarkonungur lánaði Leó einkaþotuna Dramatík í tveimur þáttum: Gervigreindarbóla og óður um yfirráð Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Sjá meira
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“