Fjórir ferðamenn fundust við leit 4. apríl 2007 17:45
Fjórir Bretar fundust við ánna Blöndu í dag en þeir höfðu ekki samband við Landsbjörgu í gær eins og þeir ætluðu að gera. Eftirgrennslan var því hafin eftir leiðaráætlun sem mennirnir höfðu skilið eftir og gekk auðveldlega að finna þá. Mennirnir hugðust ganga á skíðum frá Ingólfsskála að Hveravöllum. Við Blöndu lentu þeir í miklu vatni og krapa og komust ekki af sjálfsdáðum yfir ánna. Björgunarsveitarmenn eru að ferja mennina í byggð. Bretarnir eru þaulvanir ferðamenn. Þeir voru mjög vel búnir, með fimm gps tæki, VHS talstöð og gervihnattasíma frá Landsbjörgu. Þá fór Björgunarsveitin Ingunn til aðstoðar tveimur bílum sem voru fastir á Gjábakkavegi. Þetta er fjórða útkallið þar á stuttum tíma sem Ingunn sinnir. Ástandið á hálendinu er slæmt um þessar mundir. Mikil bleyta og krapi, eða „allt á floti" eins og haft er eftir björgunarsveitarmanni á Kjalvegi og Hveravöllum í tilkynningu frá Landsbjörgu. Landsbjörg ítrekar að færð er mjög þung víða á hálendinu, jafnvel fyrir sérútbúna jeppa.
Fréttir Mest lesið Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Algjörlega óásættanleg staða Innlent Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Innlent Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Erlent Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Innlent Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Innlent Hættu við lendingu í miðju aðflugi Innlent „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Milljarða útspil meirihlutans „fullkomlega ábyrgðarlaust“ og lykti af prófkjörsbaráttu Ákærður fyrir nauðgun á nýársdag Markverð tíðindi í nýrri Maskínukönnun um fylgið á landsvísu Hátt í tíu þúsund manns án atvinnu í desember Sex sagt upp í menntamálaráðuneytinu Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Vinnuslys þar sem maður „missti höndina inn í vals“ Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Sjá meira