Innlent

Viðgerð lokið á heitavatnsæð í Hafnarfirði

Viðgerð er lokið á heitavatnsæð við Öldugötu í Hafnarfirði, en þar varð vart við mikinn leka um kl. 16:00 í dag. Loka þurfti fyrir rennsli til byggða í Áslandshverfi, á Völlum og á Hvaleyrarholti á meðan unnið var að viðgerð. Hún gekk vel og var lokið um kl. 20:00.  Fullur þrýstingur var kominn á núna fyrir stundu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×