Hicks játaði 27. mars 2007 11:56
Ástralinn David Hicks, sem setið hefur í fangabúðunum í Guantanamo undanfarin fimm ár, hefur viðurkennt fyrir herdómstól að hafa tekið þátt í hryðjuverkastarfsemi. Hicks er fyrsti Guantanamo-fanginn sem réttað er yfir samkvæmt lögum sem mannréttindasamtök hafa gagnrýnt ákaft.Hicks, sem er þrjátíu og eins árs og snerist til íslamstrúar fyrir nokkrum árum, var handtekinn í Afganistan í ársbyrjun 2002. Síðan þá hefur hann setið í hinum illræmdu fangabúðum í Guantanamo á Kúbu. Hicks er ákærður fyrir að hafa sótt þjálfunarbúðir al-Kaída í Afganistan og barist með talibönum en ákærur um morð hafa hins vegar verið felldar niður. Í gærkvöld, á fyrsta degi réttarhaldanna, játaði hann svo óvænt að hafa aðstoðað hryðjuverkamenn við iðju sína. Búist er við að dómur yfir Hicks verði kveðinn upp innan fárra daga. Lífstíðarfangelsisdómur er líklegasta niðurstaðan en þó er ekki loku fyrir það skotið að vegna þrýstings frá áströlskum yfirvöldum verði dómurinn eitthvað vægari. Samkvæmt samningi ríkisstjórna Bandaríkjanna og Ástralíu verður Hicks fluttur til heimalands síns þar sem hann afplánar svo dóminn.Hicks er fyrsti fanginn sem er ákærður eftir lögum sem Bandaríkjastjórn setti síðastliðið haust til að bregðast við dómi hæstaréttar landsins um að meðferð Guantamo-fanganna bryti í bága við stjórnarskránna. Mannréttindasamtök segja hins vegar að nýju lögin veiti föngunum síst meiri vernd og herréttarhöld byggð á þeim séu einungis til málamynda.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira