KR marði sigur í fyrsta leik 25. mars 2007 20:59 Benedikt Guðmundsson og félagar hans í KR eru komnir með forystu í undanúrslitarimmunni gegn Snæfelli eftir sigur í Vesturbænum í kvöld.
KR-ingar báru sigurorð af Snæfellingum, 82-79, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deild karla í körfubolta. Leikurinn reyndist frábær skemmtun og réðust úrslitin ekki fyrr en í blálokin. Í kvennaflokki jafnaði ÍS metin í rimmunni gegn Haukum í undanúrslitum með góðum 84-74 sigri. Staðan þar er nú 1-1. Lokasekúndurnar í DHL-höllinni voru spennuþrungnar með eindæmum og mátti engu muna að gestirnir frá Snæfelli næðu að "stela" sigrinum eftir að hafa verið á hælunum framan af leik. Snæfellingar náðu að minnka muninn niður í eitt stig þegar þrjár mínútur voru til leiksloka, en þess má geta að mestur fór munurinn í 20 stig í fyrri hálfleik þar sem KR-ingar fóru hreinlega hamförum. Í hálfleik var staðan 40-33, KR í vil. Jeremiah Sola skoraði mest KR-inga eða 21 stig og tók auk þess sjö fráköst. Brynjar Björnsson kom næstur með 15 stig. Hjá Snæfelli var Sigurður Þorvaldsson atkvæðamestur með 21 stig, en Hlynur Bæringsson skoraði 16 auk þess að hirða 14 fráköst. Frábær síðari hálfleikur tryggði Stúdínum sigur gegn Haukum, en gestirnir frá Hafnarfirði voru með undirtökin lengst af. Úrslitin gefa ekki alveg rétta mynd af leiknum því það var ekki fyrr en á síðustu mínútum sem Súdínur sigu fram úr og Íslandsmeistarar Hauka brotnuðu undan álaginu. Staðan í einvíginu er nú 1-1 en Haukar unnu fyrsta leikinn í Hafnarfirði.
Dominos-deild karla Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira