Innlent

Fimmfaldur pottur: stefnir í 35 milljónir

Fyrsti vinningur í lottóinu gekk ekki út um helgina og er því fimmfaldur laugardaginn 10. mars og stefnir í 35 milljónir sem er stærsti fimmfaldi fyrsti vinningur frá upphafi.

Ekki hefur verið svo stór vinningur í rúm tvö ár. Einu sinni var potturinn sjöfaldur og fór þá allur potturinn á einn miða. Það er stærsti vinningur í sögu lottósins. Búist er við mikilli sölu á miðum í dag en sölustöðum lokar klukkan 18:40 í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×