Flúði Íran og starfar með Bandaríkjunum 8. mars 2007 22:00 Mohammad Khatami, fyrrum forseti Írans, en Asgari starfaði fyrir hann. MYND/AFP
Fyrrum aðstoðarvarnarmálaráðherra Írans, sem eitt sinn var yfir Byltingarhernum í Íran, hefur farið frá Íran og vinnur nú með vestrænum stjórnvöldum. Hann er að gefa þeim upplýsingar um starfsemi Hisbollah og tengsl Írans við samtökin samkvæmt því sem háttsettur bandarískur embættismaður skýrði frá í dag. Maðurinn, sem heitir Ali Rez Asgari, hvarf í febrúar þegar hann var í heimsókn í Tyrklandi. Íranskir embættismenn hafa gefið í skyn að ísraelskar eða bandarískar hersveitir hafi rænt honum. Talsmaður Bandaríkjanna sagði hins vegar að Asgari væri að vinna með þeim af fúsum og frjálsum vilja. Hann tók þó fram að það sem Asgari væri að segja þeim væri þeim þegar kunnugt um. Asgari vann í írönsku stjórninni fram til ársins 2005 hjá fyrrum forseta Írans, Mohammad Khatami. Bakgrunnur hans gefur til kynna að hann hafi mikilvægar upplýsingar um hvernig skipulagi varnarmála Írans er háttað, hvernig þeir tengjast Hisbolla og hvaða vopnum Íran býr yfir. Íranar fullyrða að hann hafi ekkert haft að gera með kjarnorkuáætlun landsins og Bandaríkjamenn segja að ekki sé verið að spyrja Asgari um hana.
Erlent Fréttir Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira