Ókeypis hafragrautur handa svöngum nemendum 5. mars 2007 20:00
Grunnskóli á Akureyri hefur brotið blað í sögu skóla þar í bæ með því að bjóða öllum nemendum sínum upp á ókeypis hafragraut. Börnin taka árbítnum fagnandi og rennur grauturinn ofan í maga nemenda í stríðum straumum. Ein ástæða þess að Brekkuskóli tekur þetta skref er að sögn skólastjóra sú að of mikið er um það um allt land að nemendur mæti hreinlega svangir í skólann á morgnana. Aðstoðarskólastjórinn á heiðurinn af hugmyndinni og verður gerð tilraun með þetta í mánuð - frír grautur fyrir nemendur og starfsfólk. Skemmst er frá því að segja að grauturinn sló í gegn í morgun - hjá börnunum að minnsta kosti - og er árbíturinn holli væntanlega kominn til að vera. Kannski kemur á óvart að hafragrautshefðin lifi af allar þær breytingar sen orðið hafa á neyslulífi landans. En Brekkuskólabörnin voru himinsæl með grautinn sinn. Og sumum fannst hann jafnvel betri en hjá mömmu og pabba. Að minnsta kosti fimm skólar á höfuðborgarsvæðinu bjóða upp á slíka þjónustu. Fellaskóli, Laugalækjarskóli, Vesturbæjarskóli og Lækjarskóli bjóða allir upp á hafragraut á morgnanna. Engjaskóli býður nemendum auk þess upp á lýsi ef þeir vilja en ekki fer miklum sögum af vinsældum þess.
Fréttir Innlent Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Hvessir á mestöllu landinu í kvöld Veður Matthías leiðir Framsókn í Árborg Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Brotist inn hjá Alberti Innlent Fleiri fréttir Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Brotist inn hjá Alberti Kvöddu Davíð hinsta sinni Enn óvissa um framtíð blóðmerahalds: „Þetta er stórt og viðkvæmt mál“ Losun virkjana fjórðungi minni með nýrri lofthreinsistöð Vegurinn á Bolafjall ekki lengur á ábyrgð utanríkisráðuneytisins Átta ár fyrir gróf brot gegn gestkomandi barni og eiginkonu Hrönn og Þórir hafna helstu ávirðingum á RIFF „Ég var skelfingu lostinn“ Aðstoða blauta og kalda gönguskíðamenn á Hofsjökli Óveðrinu slotað og ASÍ með áhyggjur af bensínverðinu Fimm fólksbílar og flutningabíll fastir á Holtavörðuheiði Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Vaktin: Útför Davíðs Oddssonar Listi Framsóknar í Kópavogi kynntur og Orri áfram oddviti Segir gæði sérnáms heimilislækna í hættu Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Sjá meira