Enn logar í japanska hvalskipinu 16. febrúar 2007 19:45
Óttast er að umhverfisslys geti verið í uppsiglingu í Suður-Íshafinu eftir að eldur kom upp í japönsku hvalveiðiskipi þar í gær. Hafsvæðið er eitt hið tærasta í heiminum og þar eru einnig varpstöðvar mörgæsa. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að koma böndum á eldinn hafa skipverjar ekki viljað þiggja hjálp frá umhverfisverndarsinnum á svæðinu. Nisshin Maru er flaggskip japanska hvalveiðiflotans en það hefur verið að veiðum í Ross-hafi, rétt við Suðurskautslandið. Skipið hefur hins vegar lítinn frið fengið til veiðanna fyrir umhverfisverndarsinnum. Í gær kom upp eldur í því af ókunnum orsökum og hefur enn ekki tekist að slökkva hann. Japönsk stjórnvöld eru ekki í vafa um hverjir eiga sök á ástandinu. Þau segja Sea Sheperd-samtökin hafa með aðgerðum sínum skapað þvílíkt ástand að eldur kviknaði og í eldsvoðanum lést einn skipverjanna. Esperanza, skip Greenpeace-samtakanna, var fyrst á vettvang enda hefur það reynt undanfarna daga að spilla fyrir veiðunum. Þegar eldurinn kom upp bauðst áhöfn þess hins vegar þegar í stað til að aðstoða skipverjana við að slökkva á eldinn en sú hjálp var ekki þegin. Ross-haf er eitt hið tærasta í heimi og þar eru jafnfram heimkynni ýmissa viðkvæmra dýrategunda á borð við mörgæsir og seli. Um borð í Nisshin Maru eru 500 tonn af svartolíu og 800 tonn af gasolíu og því er óttast að mikið umhverfisslys geti orðið komi leki að skipinu. Enda þótt Japanarnir fullyrði að engin olía hafi lekið í sjóinn skoruðu nýsjálensk stjórnvöld á þá að þiggja þá aðstoð sem þeim hefur verið boðin eigi ekki illa að fara.
Erlent Fréttir Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira