Beið bana í eldsvoða 9. febrúar 2007 18:30
Íslenskur maður lét lífið í bruna í geymslu við veitingahús í Stokkhólmi í fyrrinótt. Orsakir slyssins eru óljósar en Stokkhólmslögreglan vinnur að rannsókn þess. Það var um þrjúleytið í fyrrinót sem lögregla og slökkvilið fengu tilkynningu um reyk í sorpgeymslu við veitingastaðinn Engelen í Gamla Stan, gamla bænum í Stokkhólmi. Þegar geymslan var opnuð fannst maðurinn látinn þar inni. Að sögn Stokkhólmslögreglunnar er hvorki vitað um eldsupptök né hvað maðurinn var að gera einsamall í geymslunni. Hún er læst utanfrá og því aðeins hægt að komast í hana úr veitingastaðnum. Vitað er að maðurinn var á veitingastaðnum fyrr um kvöldið með vinum sínum en hann var staddur í Stokkhólmi í tengslum við vinnu sína. Búist er við að dánarorsök liggi fyrir strax eftir helgi en í bili segir lögregla ekki ástæðu til að ætla að manninum hafi verið ráðinn bani heldur er líklegra að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. Maðurinn sem lést er á fertugsaldri og lætur eftir sig unnustu og barn. Ekki verður greint frá nafni hans að svo stöddu.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira