Frábær árangur hjá íslenska badmintonfólkinu 20. janúar 2007 18:23 Mynd/Vilhelm
Íslenska badminton landsliðið lagði það svissneska í undanúrslitum evrópukeppni B-þjóða í Laugardalshöll nú undir kvöldið og tryggði sér þar með þátttökuréttinn í Evrópukeppni A-þjóða. Enn og aftur var það sigur í lokaleiknum sem réði úrslitum. Íslenska liðið byrjaði á sigri í Tvenndarleik þar sem Tinna Helgadóttir og Helgi Jóhannesson unnu andstæðinga sína með tveimur lotum gegn einni, 21-16, 15-21, 21-19. Magnús Ingi Helgason beið svo lægri hlut í einliðaleik karla og Svisslendingar náðu að jafna, 1-1. En Ragna Ingólfsdóttir kom Íslendingum í 2-1 með sigri í einliðaleik kvenna en aftur jafnaði Svissneska liðið með sigri í tvíliðaleik karla og staðan því 2-2 fyrir síðustu viðureignina, tvíliðaleik kvenna. Þar voru það Ragna og TInna sem unnu nauman og dramatískan sigur á keppinautum sínum. Eftir að hafa tapað fyrstu lotu unnu þær íslensku næstu tvær lotur í hnífjafnri keppni og endurtóku þar með leikinn frá því í gær þegar þær tryggðu Íslandi sigur í riðlinum í síðasta leik gegn Portúgölum. Ísland er því komið í úrslit á mótinu og öruggt með sæti í Evrópukeppni A-þjóða í Danmörku í apríl á næsta ári.
Innlendar Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hefurðu enga sómakennd?“ Hefur Ben Simmons náð botninum? Dagskráin í dag: Bland í poka úr ýmsum áttum Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Russell á ráspól í fyrramálið Andy Murray þjálfar erkióvininn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Stelpur Þóris fóru illa með fyrsta mótherja Íslands Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Sjá meira