Krossferð Jakobínarínu 29. júní 2007 09:00 Hafnfirska hljómsveitin gefur út sína fyrstu plötu í september.
Fyrsta breiðskífa hafnfirsku hljómsveitarinnar Jakobínarína hefur fengið nafnið The First Crusade, eða Fyrsta krossferðin. Kemur hún út hérlendis og í Bretlandi 24. september næstkomandi. „Nonni [Jón Sæmundur] var með pælingar um að við værum í krossferð því við erum Íslendingar sem erum alltaf úti,“ segir söngvarinn Gunnar Ragnarsson um nafnið. „Vinir okkar spurðu síðan hvort við vildum ekki láta hana bara heita The First Crusade og okkur leist vel á það.“ Jón Sæmundur leikstýrði einmitt myndbandi hljómsveitarinnar við lagið Jesus og hefur jafnframt aðstoðað þá félaga í fatavali. Jakobínarína er á leiðinni í tónleikaferð um Bretland eftir viku. Spila þeir félagar á tíu tónleikum á aðeins tveimur vikum og með þeim í för verður hljómsveitin Cajun Dance Party. „Þetta eru krakkar á okkar aldri sem voru að semja við stórt plötufyrirtæki. Þeir hafa vakið mikla athygli þarna úti,“ segir Gunnar. Jakobínarína er um þessar mundir að semja lög fyrir B-hliðar á væntanlegum smáskífum sínum. Kemur sú næsta, This is an Advertisment, út 23. júlí næstkomandi.
Mest lesið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Britney Spears handtekin og í haldi yfir nótt Lífið Poppstjarna notaði lag Bríetar: „Litla Bríet er að öskra núna“ Lífið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fleiri fréttir Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira