Kúbíski Kjarvalinn í danska forvörslu fyrir heimkomu 16. mars 2007 07:00
Kjarvalsverkið, sem slegið var fyrir metupphæð á uppboði í Kaupmannahöfn í síðasta mánuði, er ekki komið til landsins. Að sögn Jóhanns Ágústs Hansen listaverkasala fara danskir forverðir um það höndum og verið er að velja ramma við hæfi. Nafn hins raunverulega kaupanda verður gefið upp í fyllingu tímans. „Nei, verkið er ekki komið til landsins. Og ekki alveg víst hvenær það verður. Það er verið að ganga frá því að hún verði hreinsuð og rannsökuð. Að hún verði í góðu ástandi þegar ég afhendi hana," segir Jóhann Ágúst Hansen, listmunasali hjá Galleríi Fold. Fréttablaðið fylgdist grannt með því þegar mikið verk, áður óuppgötvað, eftir Jóhannes S. Kjarval, Hvítasunnudagur, var slegið fyrir metupphæð á uppboði í Kaupmannahöfn 27. febrúar. Enda talið einstakt og lýsa kúbísku skeiði í list Kjarvals. Jóhann Ágúst hreppti myndina eftir mikinn og æsispennandi slag og bauð í hana sem nemur rúmum 15 milljónum íslenskra króna. Eru þá ótaldar milljónir í sölulaun og gjöld. Enn er ekki vitað hvenær verkið mikla kemur til landsins en það verður líklega einhvern tíma með vorinu. Eftir að danskir forverðir hafa farið um hana höndum. Jóhann Ágúst var með eigandann í eyranu allt uppboðið og segist hafa verið kominn vel yfir þá upphæð sem þeir höfðu ákveðið sín á milli að væri þakið. En Jóhann telur þó sinn mann hafa verið reiðubúinn að fara enn hærra. „Ég veit ekki hversu hátt hefði verið farið. En við höfum orðið vör við áhuga úti í bæ fyrir því að greiða enn hærra verð fyrir myndina. Þannig að það eru greinilega fleiri en við sem höfðum tök á þessu eins og sást greinilega. Við vorum ekki bara tveir að bjóða í hana. Fimm í það heila sem fóru yfir milljón danskar," segir Jóhann Ágúst. Listmunasalinn segir að gefið verði upp í fyllingu tímans hver hinn raunverulegi kaupandi verksins er. Enn sem komið er sé það nafn aðeins milli Jóhanns og kaupandans. Jóhann Ágúst lét þess svo getið í samtali við blaðamann Fréttablaðsins úti í Kaupmannahöfn strax eftir uppboðið að almenningur á Íslandi fengi að njóta myndarinnar og Jóhann segir það standa. Þótt hún fari á einkasafn mun eigandinn ekki loka hana inni. „Ef beðið verður um myndina á sýningu safna er ekki útilokað að það verði leyft. En það er alfarið hans ákvörðun. Þegar að því kemur. Söfnin hafa mikinn áhuga á þessari mynd. Hafa lýst því yfir og ég geri ráð fyrir að þau vilji sýna hana. Hún var ekki keypt í þeim tilgangi að fela hana. Það er samfélagsleg skylda allra sem eiga fræg listaverk að sýna þau einhvern tíma. Það ætti að vera krafa á alla listaverkasala að mínu mati." Jóhann Ágúst hefur gert upp árið 2006 hvað varðar listaverkasölu og þar má greina hækkun listaverkavísitölu um 18 prósent. Sem er minni hækkun en var milli áranna 2004 og 2005 - þá hækkun um 124 prósent. „Verðmæti seldra verka árið 2006 er kr. 105.533.627 á verðlagi ársins 2005 sem er aukning upp á 21% frá fyrra ári."
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Í jólaskapi í júní Sex íslenskir söngvarar ráðnir til Þjóðaróperunnar Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Hilmir Snær stígur einn á svið Arnhildur Pálmadóttir er borgarlistamaður Reykjavíkur Veggjakrotað með kandýfloss á sýningunni „Hæhóogjibbíjei” Myndaveisla: Aldrei of gamall til að skella sér á bak David Hockney er látinn Ný bók frá Kirkegaard 47 árum eftir dauða hans Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Metsöluhöfundur birtist óvænt á Ísafirði og áritaði bækur Marjane Satrapi er látin „úr sorg“ Natasha S. hlýtur Maístjörnuna Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Sjá meira